Alpina á Íslandi
Faglegar lausnir í snjónum
Um BRB / Birgir R. Baldursson
Bakgrunnur og Reynsla
Ég bý yfir meira en 16 ára reynslu af því að kynna stórkostlega náttúru Íslands fyrir gestum.
Sem vanur ökumaður og leiðsögumaður hef ég sérhæft mig í ævintýraferðum við krefjandi aðstæður – meðal annars við akstur á snjósleðum á Langjökli þar sem ég starfaði sem verktaki hjá bæði Mountaineers of Iceland og Snowmobile.is.
Þar að auki hef ég síðastliðin þrjú ár starfað sem öku-leiðsögumaður fyrir Superjeep, farið í allar þær ferðir sem þeir hafa upp á að bjóða og sinnt miklum fjölda Norðurljósaferða í gegnum árin.
Árið 2023 starfaði ég einnig sem leiðsögumaður á Kötlujökli, þar sem ég fór allt að þrjár ferðir á dag í íshella með gesti frá Vík, auk þess að fara í Buggy-ferðir um hið stórfenglega landslag í nágrenni Víkur.
Þessi víðtæka reynsla tryggir að ég þekki vel til á hálendinu og á jöklum landsins.
Birgir R Baldursson
fyrir Markaðinn á Íslandi
Af hverju Alpina?
Íslenskar aðstæður krefjast öryggis, burðarþols og áreiðanleika sem venjulegir sleðar ráða einfaldlega ekki við.
Alpina SNJÓSLEÐAR opna nýja möguleika fyrir marga lykilgeira á Íslandi.
REYNSLA OG FAGMENNSKA
AÐEINS FYRIR
ERFIÐUSTU AÐSTÆÐUR
Með þessa víðtæku reynslu af akstri á stórum og breyttum ökutækjum og snjósleðum á íslenskum jöklum sá ég skýrt fram á nýtt tækifæri á markaðnum.
Ég hef fylgst náið með þróun Alpina í gegnum fréttabréf þeirra í yfir áratug og séð vélarnar þróast í gegnum tíðina.
Á meðan íslenski markaðurinn hefur aðallega snúist um hefðbundna tómstundasleða, hefur vantað tæki sem ráða við þungu verkefnin.
Nú er BRB orðinn opinber umboðsaðili og innflytjandi Alpina á Íslandi, með það að markmiði að bjóða upp á faglegar lausnir sem skipta máli fyrir:
Björgunarsveitir (ICE-SAR): Öruggar flutninga- og neyðarlausnir (t.d. Safe Rescue Kit).
Ferðaþjónustu: Öfluga vagnakosti eins og Snow-Bus og Transalp fyrir hálendisferðir.
Skíðasvæði: Faglegan búnað til að undirbúa gönguskíðabrautir og svæði.
Orkuveitur og innviði (t.d. Landsnet): Flutning á þungu efni og tækjum þar sem önnur tæki eiga erfitt með að komast.