Skip to main content

Alpina Iceland BRB

HANNAÐUR FYRIR
ERFIÐAR AÐSTÆÐUR

Alpina tvíbeltis fjölnota snjósleðar eru sérhæfðir fyrir krefjandi aðstæður.
Þessir sleðar bjóða upp á hámarks burðarþol, öryggi og drifkraft, hannaðir til að skila árangri fyrir leit, björgun og ferðaþjónustu þegar mest á reynir.

Traustur félagi í neyð eða starfi

Með tvíbeltatækni og gríðarlegum togkrafti komast Alpina sleðarnir á svæði þar sem önnur tæki eiga í erfiðleikum.

alpina-superclass-1-2l-vvt-12v-003

Alpina snjósleðar hafa um áratuga skeið verið hornsteinn í flutningum og vinnu við erfiðustu aðstæður á öllum heimsálfum, frá Alaska til Suðurskautslandsins.

Þeir eru þekktir sem hið fullkomna „tengistykki“ á milli hefðbundinna snjósleða og minni snjóbila (snowcats), og leysa verkefni sem önnur tæki eiga í erfiðleikum með.

Leit & Björgun.

Superclass björgunarútgáfa: Útbúin sérstöku björgunarkerfi (SRK - Safe Rescue Kit) sem inniheldur rafræna sjálfvirkni til að jafna sjúkrabörur í ójöfnum, ásamt rými fyrir læknalið og björgunarsveitarmenn. Einnig með möguleika á sérhæfðum tengivögnum fyrir aukabúnað, neyðargögn og mannskap þegar mest á reynir.

Ferðaþjónusta.

Alpina Snow-Bus: Fullkomin samsetning tvíbeltissleða og sérhönnuðum farþegavagni sem tryggir örugga, þægilega og arðbæra hópflutninga í krefjandi vetrarfærð og hálendisferðum.

Skíðasvæði.

Olympics F-250 Trackmaker tækið fyrir afar skilvirka gerð og viðhald á gönguskíðaslóðum (Nordic trail grooming).

Veitur & Innviðir.

Tryggja áreiðanlegan flutning á þungu efni, varahlutum og tækjum fyrir viðgerðarteymi að fjarskiptamastrum, raflínum og öðrum mannvirkjum – hvort sem um er að ræða lausamjöll, harðfenni eða djúpann snjó á hálendinu og í miklum snjóþyngslum.

Stofnár framleiðanda
0
Belti fyrir stöðugleika
0
Áratuga reynsla+
0

Alpina SNOW-BUS

Nýir möguleikar í farþegaflutningum á hálendinu

Viltu auka tekjur og gæði í vetrarrekstrinum? Alpina SNOW-BUS er öruggur farþegavagn hannaður til að draga á eftir Superclass 1.2L VVT 12V vinnusleðanum – hinni fullkomna all-in-one lausn fyrir þungan drátt og fólksflutninga í snjó.

Þetta opnar fyrir spennandi möguleika á fjallaskíðaferðum, hentugt fyrir skíðasvæði og mjög sniðugt í norðurljósaferðir fjarri ljósmengun, eða sem lúxusþjónusta fyrir gesti á hálendishótelum og hálendisskálum. 

Samsetningin skilar óviðjafnanlegum stöðugleika og afköstum, þar sem farþegar njóta stórkostlegs útsýnis og þæginda í sérhönnuðum vagni.

Leit & Björgun
Hraði og öryggi þegar líf liggur við

Í neyð skiptir hver sekúnda máli.
Með Alpina Superclass, útbúinn sérstöku björgunarkerfi (SRK – Safe Rescue Kit) með með rafrænni sjálfvirkni í jöfnun fyrir sjúkrabörur, pláss fyrir læknalið og björgunarsveitarmenn, gerir þetta eitt afkastamesta tæki sem völ er á.

  • Tímasparnaður í leit: Tvíbeltatæknin tryggir að sleðinn kemst á svæði þar sem erfitt er að komast að í snjó eða þungu færi, sem styttir viðbragðstíma verulega.

  • Miklir fólksflutningar: Með öflugum björgunarvögnum í eftirdragi getur ein vél flutt allt að 2 til 5 manns ásamt nauðsynlegum sjúkrabúnaði og björgunartækjum í dráttarvagni á slystað. – Einnig er hægt að vera með vagna fyrir 6-9 farþega.

  • Fagmennska fyrir Björgunarsveitir: Hannað til að standast ströngustu kröfur björgunarsveita við erfiðustu skilyrði á hálendinu og við mjög erfiðar aðstæður.

sendu fyrirspurn