FLAGGSKIP ALPINA
Alpina Superclass (1.2L VVT)
FLAGGSKIP ALPINA
Alpina Superclass (1.2L VVT)
Fullkominn tvíbeltis-snjósleði hannaður fyrir þyngstu verkefni, erfiðustu jöklaaðstæður og alvöru notkun.
Superclass er staðallinn í heimi tvíbeltis-snjósleða.
Með öflugri 1.2L VVT 12V vél skilar þessi vél gríðarlegu togþoli og áreiðanleika þegar mest á reynir.
Hún er hönnuð frá grunni til að leysa af hólmi stærri tæki við erfiðar aðstæður, hvort sem um er að ræða fólksflutninga, brautarlagningu eða þungan vinnuvagnaflutning.
Drifkerfi: Tvíbeltakerfi (Dual-Track) sem tryggir ótrúlegt grip og burðarþol í djúpum snjó, lausamjöll og harðfenni.
Vél: 1.2L VVT 12V vél sem skilar jöfnu afli og burðarþoli við krefjandi aðstæður á hálendinu.
Fjölhæfni: Hægt að útbúa þessa sleða sérstaklega fyrir mismunandi atvinnugreinar með aukabúnaði eins og Safe Rescue Kit (SRK) fyrir björgunarsveitir eða Transalp vagnakostum fyrir ferðaþjónustu og orkuveitur.
Björgunarsveitir (ICE-SAR): Möguleiki á innbyggðu Safe Rescue Kit (SRK) með rafrænni sjálfjöfnun og rými fyrir sjúkraflutninga.
Ferðaþjónustu & Hálendisferðir: Tilvalið í Snow-Bus samsetningu með Transalp dráttarpall fyrir farþega.
Skíðasvæði: Hagkvæm lausn með F-250 Trackmaker búnaði fyrir gönguskíðabrautir.
Orkuveitur og innviðir: Burðarþol og togtakmörk til að flytja efni og tæki fyrir viðhald mikilvægra innviða þegar ófærðin lokar öllum öðrum leiðum.
Útfærslur fyrir íslenska markaðinn
MARGIR MÖGULEIKAR Í BOÐI
Tvíbeltis-snjósleðinn sem leysir af hólmi stærri tæki og kemur þér þangað sem aðrir komast ekki, þetta er alvöru tæki fyrir ferðaþjónustuna og atvinnulífið)
Öryggi, burðarþol og arðsemi fyrir krefjandi vetrarrekstur á íslenskum jöklum, hálendi eða skíðasvæðum þar sem að þessir sleðar eru hannaðir fyrir þyngstu verkefni og erfiðustu aðstæður.
Alpina SNOW-BUS: Alvöru farþegaflutningasleði
Hvað er Alpina SNOW-BUS?
Alpina SNOW-BUS er öflug samsetning á SUPERCLASS 1.2L VVT 12V snjósleðanum og sérhönnuðum TRANSALP-BUS vagni.
Sleðinn er búinn sérstökum aukabúnaði til að tryggja hámarksöryggi og afköst:
Bak og veltivörn (Roll-over protection)
Vinnuljósabúnaði og dráttarkúlu
2-3 sæta búnaði á sleða auk ökumanns
TRANSALP-BUS vagni með 6 eða 9 sætum
Farþegafjöldinn miðast af því hvaða útgáfa af TRANSALP-BUS vagninum er notuð (hvort vagninn er með 6 eða 9 sætum).
Heildargeta SNOW-BUS samsetningarinnar er því samtals allt að 9 eða 12 farþegar (auk ökumanns á sleðanum).
Tvíbeltis-snjósleðinn sem leysir af hólmi stærri tæki og kemst þangað sem aðrir komast ekki.
Alvöru tæki fyrir ferðaþjónustuna og atvinnulífið) - Öryggi, burðarþol og arðsemi fyrir krefjandi vetrarrekstur á íslenskum jöklum.
Af hverju að fjárfesta í Alpina SNOW-BUS?
Búðu til nýjar tekjulindir í ferðaþjónustu:
Umbreyttu vetrarrekstrinum í arðbært ævintýri.
Alpina SNOW-BUS er leiðandi lausn í heiminum fyrir snjósleðaferðir- og hálendisferðir, sérstaklega hannað til að þjóna ört vaxandi hópi ferðamanna sem ekki stunda skíði né geta ekið snjósleða.
Hvort sem um ræðir dagsferðir eða norðurljósa- og kvöldferðir, þá tryggir SNOW-BUS þægilegan og öruggan farþegaflutning við allar aðstæður.
Fjölhæfni fyrir skíðasvæði og skála
Fyrir skíðasvæði og hálendisskála er SNOW-BUS öflugt tækki til að hámarka nýtingu:
Notaðu vinnusleðann til að leggar brautir eða aðra vinnu á daginn við farþegaflutninga .
Breyttu honum í tekjuskapandi norðurljósaferðir á kvöldin.
SNOW-BUS er meira en bara tæki – hann er stefnumótandi fjárfesting til að auka heildarupplifun viðskiptavina.














